04.03.2007 18:07:23 / solvitryggva
Örir tímar kalla á örar breytingar. Nýtt
blogg í nýju umhverfi. http://blogg.visir.is/solvi
Kíkiði þangað......: )
»
25.02.2007 21:57:59 / solvitryggva
Nú er að verða gaman. Kosningaskjálftinn er
kominn á fullt og stjórnmálamenn keppast um hver á stærsta og
sterkasta pabbann. Minns er meira á móti klámi en
þinns. Skynfæralausir eru einir um að hafa komist hjá
því að sjá/heyra/lesa viðtöl við
kappsama pólitíkusa sem hafa slegist um að fá að
bölva klámráðstefnugestum í fjölmiðlum.
Í dag náði kappið nýjum hæðum í
formi tillagna að netlögreglu. Stjórnmálamenn sem sitja
sveittir við að hugsa upp leiðir til að skáka þessu ættu ekki
að örvænta. Komum fyrir örflögu í heilum Íslendinga sem banna
klámfengnar hugsanir. Sá sem skellir þessu fram á borðið á
pabba sem ekki verður sigraður í sjómann í bráð.
»
22.02.2007 18:00:34 / solvitryggva
John Arne Riise er einfættasti leikmaðurinn í
ensku úrvalsdeildinni og líklega mætti stækka það mengi
til muna. Maðurinn er hreinlega handónýtur með boltann á
hægri, svo mjög að það verður á köflum pínlegt. Miðað við
tilburðina hingað til mætti leiða að því líkum að það hafi
verið svona 1 á móti krónum Hannesar Smára á að hann hitti
markið úr færinu sem hann fékk gegn Barca í gær. Var
þetta lóttóvinningur ársins, eða barði Bellamy hægri fótinn í
lag??
»
21.02.2007 23:41:52 / solvitryggva
Þetta var sætt! Liverpool kenndu Barca að
fótbolti snýst um meira en knattrak. Þessi leikur vannst á
viljastyrk og dugnaði. Katalóníukettlingarnir voru kæfðir af
alvöru mönnum, sem létu það ekki á sig fá þó að þrjatíu
sinnum hefði gríski fetaosturinn flautað undan misháu voli
heimamanna. Ég held að þessum vælukjóum á norð-austur
Spáni veitti ekkert af að fara að taka aðeins í golfkylfurnar
á æfingum. Í kvöld mættu drengir karlmönnum!!
»
21.02.2007 12:42:07 / solvitryggva
Ég má til með að segja frá erfiðleikum
Íslands í dag við að finna viðmælanda úr röðum báráttumanna
gegn klámi til að mæta Geira á Goldfinger í þættinum í
gær. Ekki stóð á Ásgeiri að mæta vegna umræðunnar um
klámráðstefnuna, en vel á annan tug yfirlýstra andstæðinga
gegn ráðstefnunni og kynlífstengdum iðnaði almennt, ýmist
neitaði að mæta, eða afboðaði komu sína eftir að hafa ráðfært
sig við ,,ráðgjafa sína". Það er vel skiljanlegt að
einhverjir hafi andúð á Geira á Goldfinger, en þess þá heldur
að mæta honum og taka slaginn. Ég efast um að stjórnendur
Alþjóðahúss myndu neita að mæta mönnum í
sjónvarpssal sem þeir teldu að væru að níðast á
útlendingum. Látum vera að Alþingismenn
eða þeir sem gegna embættisstörfum hafi ekki viljað láta sjá
sig, en allt öðru máli gegnir um talsmenn þrýstihópa eins og
femínistafélagsins, sem hafa einmitt það hlutverk að hafa
hátt og láta í sér heyra ef þeim finnst pottur brotinn. Í
hugsjónastarfi ætti hugleysi að vera bannorð
og í verkið þarf fólk sem er tilbúið að taka slaginn hvar og
hvenær sem er.
»
18.02.2007 20:35:31 / solvitryggva
Við erum í góðum málum í Eurovisjón. Þó ekki
nema bara vegna þess að það þarf undur og stórmerki til að
við verðum ekki með mesta töffarann á sviðinu í maí.
Síðhærður, rauðhærður, á fimmtugsaldri og það er honum svo
natural að vera í leðurbuxum að fólki myndi bregða ef hann
sæist klæddur öðru. Ég veit að hvorki í dag, né á
fimmtugsaldri, gæti ég fyrir mitt litla líf talað norsku í
leðurbuxum án þess að vera hallærislegasti maður á jörðinni.
Þannig líður væntanlega flestum. Hvernig fer Eiki að
þessu??
»
18.02.2007 20:12:10 / solvitryggva
Maður þarf að vera
bæði heyrnarlaus og blindur til að vita ekki af
X-Factor, enda sennilega heil deild að störfum við það eitt
að auglýsa þáttinn. Samt hefur maður einhvern vegin á
tilfinningunni að áhorfið muni ekki alveg verða í samræmi við
það. Við Þorbjörg verðum seint
flokkuð undir sófakartöflur og horfum frekar lítið á
sjónvarp. Endrum og sinnum finnst okkur samt gott að hlamma
okkur niður við imbann skella í eina Eldsmiðjulummu,
rucola og rauðvín með. Þetta gerðist iðulega á föstudögum
þegar Idolið var og hét, en verður væntanlega sjaldgæft í
vetur. Sorry ef ég móðga einhvern, en conceptið er bara ekki
að gera sig, auk þess sem það vantar einfaldlega quality
í keppendahópinn. Að undanskildum örfáum er þetta einhverra
hluta vegna eins og eitt stórt karókípartý. Það eitt og
sér gæti samt alveg reddast ef dómarnir væru þá bara
umbúðalausir og segðu keppendum eins og væri. Því miður
virðast þeir hins vegar yfirleitt halda að þeir séu
staddir á stóru Dale
Carnegie námskeiði og hlutverkið sé að peppa og styrkja
sjálfsímynd. Mættu horfa oftar á American Idol, þar sem Simon
Cowell fer gjörsamlega á kostum og hikstar ekki við að láta
keppendur vita af því ef þeir eiga að snúa sér að öðrum
hugðarefnum í lífinu. Hér eftir verður
rauðvínsflaskan opnuð á mánudögum.
»
16.02.2007 00:44:58 / solvitryggva
Það liggur fyrir að margir eiga um sárt að
binda eftir dvöl á meðferðarheimilum hins opinbera hér fyrr á
árum. Að sama skapi hlýtur umfjöllun undanfarinna daga og
vikna að vera erfið fyrir þá starfsmenn sem unnu af
hugsjón í Breiðavík og upptökuheimilinu í Kópavogi á
þessum árum. Þeir tugir fyrrverandi vistmanna
heimilisins sem ég hef rætt við leggja allir áherslu á að
þarna hafi unnið margt afskaplega gott fólk, sem hafi lagt
allt sitt þrek í að hjálpa vistmönnum. Eins hafa starfsmenn sem þarna unnu haft samband og
ítrekað þetta. Enginn hefur þó véfengt að þarna hafi átt sér
stað alls kyns mannréttindabrot. Það er alls ekki ætlunin að setja alla undir
sama hatt og meirihluti starfsmanna vann líklega ekkert til
saka. Það er ekkert grín að meðhöndla unglinga frá brotnum
heimilum og því hef ég kynnst af eigin raun í starfi á
meðferðarheimilinu að Stuðlum. Þar vinnur frábært fólk og
sama má segja um Hvítárbakka og fleiri staði, þar
sem faglegt og óeigingjarnt starf á sér
stað.
Það breytir því ekki að það er skylda fjölmiðla
að segja frá skýrum mannréttindabrotum sem viðgengust árum saman
með samþykki hins opinbera. Þess vegna er það
í hæsta máta ömurlegt og ábyrgðarlaust að reyna að gera lítið úr
viðtölum við vistmenn þessara staða. Slík umræða getur orðið þess
valdandi að skelfilegir atburðir fái aldrei að koma upp á
yfirborðið. Á bakvið þrjú viðtöl í Íslandi í
dag eru fleiri tugir samtala við vistmenn, þar sem
sömu hlutir koma fram og í raun verri í sumum tilvikum. Ég efast
ekki eina mínútu um að hið sama gildi um umfjöllun Kastljóssins og
DV. Þeir sem beittir voru ofbeldi og
niðurlægingum á unglingaheimilinu í Kópavogi skipta
tugum. Kverúlantar og kjaftaskar sem láta sér detta
í hug að viðmælendur séu að slá sig til riddara með því að koma
fram í málum sem þessum ættu að skammast sín og hugsa sinn
gang.
»
14.02.2007 00:19:11 / solvitryggva
Á tölvuöld eru heimatökin hæg fyrir þá
sem vilja læra undirstöðuatriði í naglaskap. Á heimasíðu
Steve Gym, sem nú heitir kraftaheimar.net má finna
óborganlegan boðskap og fleygar setningar á borð við þessar:
,,Í gamla daga var engin æfing
almennileg hjá Herði nema að hann fengi
blóðnasir!” ......,,Það er
ekki stálið sem svíkur mann, heldur mannfólkið"....og
fleira í þeim dúr. Heimildir herma að menn verði að
gjöra svo vel að æfa á klósettinu í Steve Gym ef
þeir ná ekki hundraðinu í bekk, enda ekkert lítið sem gengur
þarna á, eins og Þessi saga hér sýnir
kannski best.
»
12.02.2007 21:12:27 / solvitryggva
Í nýjasta hefti Mannlífs er loksins
endanleg staðfesting á því sem við öll vissum. Forsíðumyndir
eru fótósjoppaðar til helvítis. Merkilegt klúður samt að
birta sömu myndina aftur inni í blaðinu, svona rétt til að
fólk geti séð blekkinguna svart á hvítu. Ef Mannlíf gerir þetta geta menn svo rétt ímyndað
sér hvernig þessum málum er háttað í glanstímaritunum úti.
Svo er þessu haldið að almúganum blessuðum, sem
sveittur kaupir sér hrukkukrem og fegrunarmeðöl fyrir
óheyrilegar upphæðir án þess að högg sjái á vatni.
»
12.02.2007 00:38:16 / solvitryggva
Jón
Axel hóf á bloggsíðu
sinni umræðu um kynþokkafulla ritstjóra í sjónvarpi og
slefandi konur við sjónvarpsskjáinn. Þórhallur í
Kastljósinu og Denni í Íslandi í dag eru báðir
alvöru metrómenn, en ég held samt að þeir
hafi hitt ofjarl sinn. Simmi í Kastljósinu hefur
gjörsamlega rústað allri metrósamkeppni í sjónvarpi með
nýrri færslu um málið. Það þarf
alvöru nagla til að leggja í að blogga á þennan máta um
útlit annarra karlmanna. Í þessu samhengi er samt auðvitað rétt
að hafa í huga að karlmennskuímyndin brenglast eilítið við það
að fá kinnalit og jafnvel "dash" af augnskugga framan í
sig á hverju kvöldi!
»
11.02.2007 17:11:17 / solvitryggva
Alveg finnst mér það með tærustu ólíkindum
að enn á ný eigi að gera stórmál úr ,,vafasamri" fortíð
stjórnmálamanna í útlandinu. Colin Cameron, leiðtogi
Íhaldsmanna í Bretlandi á semsagt að hafa fengið sér
kannabissmók þegar hann var 15 ára gamall. 15 ára!! Breaking
news - Cameron: ,,I regret some things I did in the
past".
Common, hvers vegna í andskotanum (fyrirgefið
orðbragðið) er verið að draga þetta upp og gera úr því
stórmál? Ég veit ekki með ykkur, en ég
væri eiginlega svona frekar mótfallinn því að landinu mínu
stjórnaði maður sem væri svo flekklaus að hann hefði alltaf
breytt rétt frá blautu barnsbeni. Mikið hlyti sá maður að vera
óborganlega leiðinlegur! Sem betur fer hefur
lítið farið fyrir umræðu um það hvort Geir Haarde eða Ingibjörg
Sólrún hafi farið á fyrsta fylleríið sitt 14 ára eða 18, enda hefur
það ekki nokkur einustu áhrif á hæfni þeirra í stjórnmálum. Til
allrar hamingju hafa íslenskir fjölmiðlar og pólitískir
andstæðingar verið lausir við fýsn í þessa tegund af umfjöllun.
Megi það vera þannig áfram takk!
»
08.02.2007 10:32:03 / solvitryggva
Merkilegt hvað við erum alltaf sannfærð um
ágæti nútímans. Breiðavíkurmálið er ógeðslegt og fólk spyr
sig auðvitað hvað hafi verið í gangi og hvernig í ósköpunum
þetta hafi getað átt sér stað með svo kerfisbundnum hætti. Nú
eru vonandi allar líkur á að svona lagað eigi sér ekki stað á
Íslandi árið 2007, en hvað vitum við? Það eru ekki nema
nokkrir áratugir síðan það þótti sjálfsagt að bora í hausinn
á fólki með geðsjúkdóma, eða óla það niður í lengri tíma við
ömurlegar aðstæður. Fólk hristir gjarnan hausinn þegar það
hugsar til þessa aðbúnaðar, eins og slíkt sé útilokað um
aldur og ævi héðan af. Margt hefur auðvitað batnað,
upplýsingaflæðið er meira, börn sem fullorðnir eru meðvitaðri
um mannréttindi sín og eftirlitið er víða betra og meira. En
alltaf verða til ákveðnir hópar sem eru auðveldari skotmörk
fyrir níðinga en aðrir, börn og unglingar sem hafa brotið
brýr að baki sér, þroskaheftir og þeir sem minna mega sín.
Ekki bara eru einstaklingar í þessum hópum ólíklegri til að
kjafta frá, heldur er orðum þeirra síður trúað. Markviss
níðingsskapur verður hvorki útilokaður árið 2007 né 2030.
,,Reyklaust Ísland árið 2000" var óraunhæft markmið og
,,sadistalaust Ísland árið 2010" er það líka.
Það sem hins vegar breytist vonandi í
áranna rás er að skjól níðinganna þrengist smátt og smátt með
aukinni upplýsingu og eftirliti með stofnunum.
»
06.02.2007 11:15:54 / solvitryggva
Úr því sem komið er eigum við einn
sæmilegan kost þegar kemur að Eurovision. Eiki
Hauks. Hefði ekki getað orðað
þetta betur en Davíð Þór í bakþönkum Fréttablaðsins um
helgina. Eiki er alltaf svalur, sama hvað á dynur og honum
tekst einhvern vegin að gera hluti flotta sem aðrir ættu ekki
glætu í. Hver getur verið svalur á þessum aldri, með sítt
rautt hár í þröngum leðurbuxum, syngjandi ekki betra lag?
Eiki mun ekki vinna keppnina, en hann er ,,our best
bet". Rauða töffarann til Finnlands
takk!!
»
04.02.2007 22:15:52 / solvitryggva
Ég hrökk í kút í vikunni þegar komið var að
fréttum útvarps. Eitthvað skrýtið teknóhljóð strax á undan
fréttatímanum. Mistök? Nei sama hljóðið kom þegar ég hlustaði
daginn eftir og svo kom skýringin. Hinu stáltrausta
áratugagamla stefi hafði verið skipt út, því
að fréttastofan vill sína að hún sé áræðin í takt
við nýja tíma og tilbúin til breytinga ef því er að
skipta. Og hvað kom í staðinn? Ekki beinlínis
gæsahúðartónverk, heldur eitthvert hálfbælt
teknóhljóð! Nú vil ég síður en svo
hljóma eins og nöldurkerling eða leiðindaskarfur, en þetta
var bara einfaldlega arfavitlaus ákvörðun! Jafnvel verri
en þegar ákveðið var að henda hugtakinu ,,fréttir
Stöðvar 2" og taka upp NFS.
Sumir hlutir eru svo traustir og niðurnegldir að
þeim á bara alls ekki að breyta. Eitt af
þessu var stefið á undan útvarpsfréttum. Svona næstum því
sameiningartákn fyrir þjóðarsálina. Á
að hætta að bjóða gleðileg jól klukkan sex næsta
aðfangadag?
»
Síður:
1 2